laugardagur, október 17, 2009

Tjillaður

Um síðustu helgi tóku foreldrar mínir upp á því að fara að gifta sig. Ég var hringaberi og þurfti að vera í jakkafötum. Mömmu minni fannst ég að sjálfsögðu ómótstæðilega sætur í þeim en mér fannst ég nú ekki flottur. Þessi mynd segir nú soldið það sem segja þarf :)



Annars var ég mikið að spyrja mömmu hvort hinar og þessar vinkonur hennar væru búnar að gifta sig og hvort okkur yrði boðið í þau brúðkaup. Meðal annars barst talið að Maj-Britt:

Egill Orri: Mamm, er Maj-Britt búin að gifta sig?

Mamma: Nei, ekki ennþá

Egill Orri: Förum við í brúðkaupið hennar?

Mamma: Já já allavegna ég og pabbi, ég veit ekki hvort börnum verður boðið

Egill Orri: [hneykslaður] Mamma! Ég held nú að mér verði boðið, ég er besti vinur hennar!

2 Comments:

Blogger Inga Lara said...

ja verdur thu ekki hringaberir hja henni lika?

8:36 e.h.  
Anonymous Maj-Britt said...

Nei hættu nú alveg dúllupulli ;) hann er ætur hann er svo sætur

2:06 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home