Long time - no hear
Já hún móðir mín hefur sko engan veginn verið að standa sig eftir að við fluttum á klakann. Það mætti barasta halda að ekkert markvert hefði á daga mína drifið síðan þá sem er auðvitað stórlega ýkt og alls ekki satt.
Það væri svosem of langt mál að ætla að fara að telja upp allar mínar hetjudáðir og skammarstrik en ég er nú ósköp mikill ljúflingur most of the time þó að ég geti á milli verið svo mikill óþekktarpjési að mamma mín rífur í hár sér.
En um helgina fórum við fjölskyldan út í Flatey á Breiðafirði og nutum lífsins og veðurblíðunnar ásamt hvorki meira né minna en 40 öðrum!!
Hérna eru nokkrar myndir.....
Fylgst með Baldri leggja að höfn
Smávegis farangur varð að vera með svona stórum hópi
(þetta er ekki nema brot af því besta!!!)
Brot af barnaskaranum
(f.v. Sindri, Egill Orri, Marteinn, Björk, Kári, Ásthildur, Tindur, Ísold og Baldvin, bakvið stendur Heiða með Mána)
Mamma & pabbi
lónlí bátur við sjóndeildarhringinn
Egill Orri við veiðar
Marteinn kaldi að leggja úr höfnEgill Orri á leiðinni út á opið haf
Eins og sést var spegilsléttur sjór
4 Comments:
Flottar myndir, greinilega mikid fjor i eyjunni.
Gaman að fá færslu :) skemmtilegar myndir og ég hlakka til að hitta ykkur næst ;)
Æðislegar myndir af ykkur öllum og gaman að heyra aðeins frá ykkur :) Knúsaðu nú mömmu þína vel og lengi frá mér Egill!
og knús til þín líka auðvitað ;)
sd
Já tek undir með hinum, fínar myndir og greinilega gott frí ;o)
Leó hlakkar mikið til að hitta Egil á morgun!!
-Katrín og co
Skrifa ummæli
<< Home